Ég ćtla!!!!!!!!!!75kg

Ég held að ég sé svolítið búin að finna stríðsmanninn í sjálfri mér núna, hehe eða ég vona það. Allavega búið að ganga fínt í dag bæði í mat og hreyfingu. Fór á tvöfalda æfingu og brenndi alveg um 1000 kcal, gerði 400 magaæfingar og einhverjar bakæfingar, fannst ég alveg þokkalega dugleg! :)

Að öðru, ég ákvað að vera ekki að slugsast með það að fara ekki á vigtina, það býður bara upp á þyngingu og ekkert annað, þannig að eg fór á hana og hún sýndi 92.3, hmmmm þynging upp á 1.4 kg, hefði getað verið svo miklu miklu verra eftir þessar síðustu vikur í skelfilegu mataræði. Búin að fara í búðina 2 daga í röð og bara gengið framhjá blessaða hrásykursúkkulaðinu mínu, ég ætla mér ekki að borða svoleiðis fyrr en um jólin og hana nú. Ekkert gos, nammi eða snakk fram að jólum, ég ætla ekki að borða þetta. Ég mun virkilega þurfa að hafa fyrir því, en ég ætla þetta. Það er voða mikil deyfð í öllum átaksbloggurunum í kringum mig, vona að allir fari nú að rífa sig upp úr því!

En markmiðið fyrir jólin er að komast í 88 kg, það er svolítið frá upphaflega markmiðinu, það verður bara að hafa það, þetta mjakast! !Cool

ÉG GET!!!!!!!!!75kg

Já þetta er fyrirsögnin mín, ég get þetta, ég ætla og ég skal!!!!!!!! Fínn dagur á enda. Mér gengur alltaf verst þegar ég er á næturvöktum, þá einhvern veginn fer ég að sækja í einhver orkuríkan mat og ræð einhvern veginn ekki við neitt. En núna eru engar afsakanir. Búin að fara á 2 æfingar í dag, rosa dugleg. Fer aftur á 2 á morgun og svo kemur bara í ljós hvað gerist. Ég er búin að ákveða það að ég ætla að vera 88 kg eða minna um jólin og hana nú, ég ætla það!!!!!!!!!

Laugardagur75kg

Hmmmm veit ekki alveg af hverju ég er alltaf að blogga, hef ekkert sérstakt að segja, fer ekki á vigtina, finn mig svosem ekki alveg tútna út núna en ég er bara eins, ohhhhhh pirrandi!!!!!!!! Ég get ekki hætt að gúffa í mig, hvað er eiginlega málið, ég er alveg að bugast.........

Smá væl svona í enda dagsins, eða kannski ekki alveg enda dagsins þar sem að ég er að fara á næturvakt. En það er allavega 1 jákvæður punktur í dag, ég fór út að hlaupa og hljóp 6 km léttilega. En það hefur heldur alls ekkert verið vandamálið, heldur er það blessuð fæðan, þarf að fara láta sparka duglega í rassgatið á mér..................

Miđvikudagsnótt75kg

Er í vinnunni og það er lítið að gera hjá mér í augnablikinu, þannig að ég ákvað að stelast til að blogga. Það er ótrúlegt hvað maður er fljótur að tútna út, alveg magnað eiginlega. Ég finn það alltaf á vinnubuxunum, það er ekki teygja í þeim og frekar óþægilegt þegar þær byrja að þrengjast. Hehe, ég ætlaði að vera með í 5 kg fyrir jólin, ætla það alveg ennþá, en ég miða þá allavega við frá 93 kg, því ég hef svo klárlega þyngst. En ég meika ekki alveg strax á vigtina, geri það í næstu viku.

Annars er ég búin að standa mig bara ágætlega í mataræðinu og alveg líka búin að standa mig í ræktinni, þannig að þetta kemur allt saman í ljós! :)

Sunnudagur75kg

Það er eitthvað voðalega lítið að gerast á síðunni minni, virðast fáir koma í heimsókn og fáir kvitta, hmmm, æ svona er þetta bara. Ég er nú svosem ekki að blogga fyrir neinn nema sjálfa mig, þannig að ég held áfram ótrauð.
Ég er virðist alveg vera að missa mig í átinu þessa dagana, ekki alveg það besta fyrir mig. Ég ætla frá og með þessari mínutu að hætta borða það sem ég hef verið að borða, held áfram í mínu hveiti og sykursnauða fæði, en tek það aðeins alvarlegar. Veikleikinn minn eru líka blessuð hafrafitnesin í laugum. Borða það helst á hverjum degi ef ég fæ að ráða. Markmið vikunnar er að ég má borða það 3 x, ræð hvaða daga, kemur allt í ljós. Ætla ekki að borða neitt snakk og ekkert súkkulaði. Ætla að minnka skammtastærðir, eða allavega hafa það í huga þegar ég borða.

Markmið vikunnar er að ná 2 útihlaupum, 3 lyftingaæfingum og eins margar brennsluæfingar og ég kemst á, verður bara að koma í ljós hvað vika leiðir í ljós. Kiss

Ţriđjudagur75kg

Ég er að bugast, ég er alveg að missa mig í átinu, eins og ég hef sagt áður, hrásykursúkkulaði og ég erum eitt og það sama þessa dagana. Ég bara ræð ekki við mig, ég skil þetta ekki alveg. En allavega ég er að byrja á blæðingum og þá er ég sérstaklega slæm, er reyndar alveg að blómstra þessa dagana í bólum og nartþörf.

En núna er ég allavega að reyna hætta þessu, ætla reyna setja mér markmið, þessa vikuna ætla ég að hætta borða hrásykurnammi og snakk. Ætla ekki að taka út hafrafitnessið mitt fyrr en þá í næstu viku, meika ekki að taka allt út í einu, en ég virkilega þarf þess og eins og ég hef sagt áður að skoða skammtastærðirnar. Ég er virkilega í vandræðum með hvað ég er að láta ofan í mig, veit alveg nákvæmlega hvað ég á og þarf að borða. En það ratar ekki á réttan stað, það fer alltaf eitthvað annað ofan í mig, gaaaaarrrrrrrrrrg. En ég er virkilega að fara reyna gera eitthvað í þessu, nei ekki reyna ég ÆTLA að gera eitthvað í þessu og það núna strax. Nenni ekki að fara á vigtina, því ég er búin að raða í mig síðustu daga og er að byrja á blæðingum og þá er ég alveg 2 kg þyngri. Surprised

Miđvikudagur75kg

Góðan og blessaðan daginn, ég er hér með komin í átak ásamt fleirum í að ná 5 kg af fyrir jólin, vei, ætla rétt að vona að það markmið náist. 1. nóv markmiðið mitt er allavega ekki nást, hmmm svona er þetta bara, er ennþá bara örfáum grömmum undir 1.okt markmiðinu, ekki skemmtilegt. Fór á vigtina áðan og ég vissi að það yrði ekki góð niðurstaða, 91.6, takk fyrir já, bara upp um 700 grömm, bara pirrandi! En ég meina ég hef þá markmiðið að komast niður í 86.6, þann 22. des bara. Það eru 9 vikur í það, sem þýðir að maður verður að léttast um 550 grömm á viku, það hlýtur að vera hægt, ég hef það bara sem markmið allavega.Tongue out

Ég var í ræktinni áðan, sem er nú ekki frásögum færandi, en allavega ég var semsagt komin niður í búningsherbergi og var á leiðinni í sturtu og ætlaði aldeilis að vigta mig áður en ég færi í sturtuna (fer alltaf á sömu vigtina) en já, það er svona snyrtisvæði hjá vigtinni, hárblásarar og dót. Og þar er ein sem stendur þarna og er að blása á sér hárið, alveg við vigtina og hún var sko í óra óra tíma að því. Ég er svo vigtarfælin að mér dettur ekki í hug að fara á vigtina þannig að aðrir sjái mig fara á hana og sjái töluna mína, veit ekki af hverju en svona er þetta bara. Ég var orðin ansi pirruð á að bíða, en ég held að það hafi líka verið hálfpartinn smá öfundsýki hjá mér, því þetta var ljóska með sítt hár og voða fín sílikonbrjóst og voða fit og flott og var sko alveg að flagga því. Á meðan var ég fitubollan að bíða eftir að komast á blessaða vigtina og vonast til að sjá ekki svo svakalega slæma tölu, hehe, æ ég er svo biluð.

Ég var að reikna BMI mitt, það er núna 28 slétt. Til þess að ég komist í heilbrigða flokkinn þarf ég að vera 81.7, þá er bmi 24.9. Ég er nefnilega 181 cm á hæð, en takmarkið er samt 75 kg. Vá hvað ég er með mikla munnræpu, ætla að stoppa núna hehe! :)

Ţriđjudagur75kg

Fjólublár dagur í dag!!! Voðalega lítil hreyfing hérna, fáir sem kíkja á síðuna og fáir að kommenta, hehe, svona er þetta bara. Allt gengur sinn vanagang hjá mér. Fór á æfingu í dag og náði að brenna 1000 kcal, það er bara ágætt, enda tók það nú alveg tæplega 80 mín.

Ég er samt að drepast úr einhverri nartþörf á kvöldin og ég er alveg að láta það eftir mér, sem er ekki gott sko. Hmmmm hrásykursúkkulaði, my worst enemy Innocent Þarf sko aldeilis að sparka í rassgatið á mér varðandi það. Annars lítið að frétta, hef ekkert farið á vigtina, hef það á tilfinningunni að hún sé mér ekki hliðholl helvísk!

Fimmtudagur75kg

Nú ætla ég að prófa að hafa rauða stafi, hehe. Ég átti sko minn nammidag í gær skal ég segja ykkur. Allt samt innan minna marka, bara ekki innan kaloríumarka, veit ekki hvað ég borðaði mikið af kalorium, en það var á bilinu 2000 til 2500 held ég. Áður fyrr ef ég ákvað að ég ætti nammidag fór það upp í miklu miklu meira sko, þannig að ég er bara sátt.

Fór svo í ræktina í dag og náði að brenna 700 kcal á 55 mín í dag, það var bara ágætt.

Ég verð að viðurkenna það að eins mikið og ég vildi að til væru töfralausnir á fituvandamálunum, þá held ég að það sé ekki til. Til dæmis eins og þessir blessuðu plástrar sem allir eru að kaupa núna til að grennast, ég veit það ekki ég set nú ákveðið spurningamerki við það. Jújú örugglega vökvalosandi, en það er ekki lausnin sem við þurfum á að halda. Sama segi ég um herbalife og lr og allt þetta, ég viðurkenni það að ég hef aldrei prófað þessa kúra. En hvað gerist þegar maður hættir að nota allt þetta drasl??? Fitnar maður ekki aftur, eða þarf maður að vera með þetta alla ævi, hmmmmm. Æ ég veit það ekki, auðvitað hjálpar þetta sumum. Svo held ég líka að ef maður trúir á að eitthvað hjálpi manni, þá munu það ósjálfrátt gera það.

Ég held að ef til væri töfralausn á þessu, þá væri enginn í heiminum feitur, því það væri virkileg lausn, eins og 1 pilla eða eitthvað sem maður þyrfti að taka, æ fattið hvað ég meina??? Ég er bara að bulla eitthvað hérna. Hehe ég held að eina alvöru lausnin sé að borða minna og hollara og hreyfa sig, en það er auðvitað bara mín skoðun! :)

Miđvikudagur75kg

Góðan og blessaðan daginn, þá er ég mætt aftur í höfuðborgina eftir annars mjög svo ágæta helgi í sveitinni. Fór á vigtina í morgun og var þá 90.9, 1 kg eftir í 80 og eitthvað, ohh hvað það verður nú mikill léttir. Hlakka mikið til, það verður vonandi bráðum. Annars gekk mataræðið bara ágætlega um helgina, ekkert hveiti eða sykur. Borðaði heldur mikið af hangikjöti, sem þýðir svolítill bjúgur, en hann sagði allavega ekki til sín á vigtinni í morgun, sem var mjög gott.

Annars gengur allt bara sinn vanagang, fór í ræktina í morgun og var eitthvað voðalega þreytt og ómöguleg, maður getur ekki alltaf verið geðveikt hress og kátur, svona er þetta bara, fór allavega þó ég væri ekki jafn dugleg og venjulega! Cool

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Maturinn