Laugardagur part II75kg
Já blogggleðin alveg að fara með mann núna, hehe!! Ég ætlaði nú bara að leiðrétta það sem ég sagði áðan, að ég ætlaði að hlaupa 6 km, ég hljóp nú bara rúmlega 3. Svolítið pirruð yfir því, því ég var í svaka stuði, en maginn var í messi og við því var ekkert að gera.Var að gúffa í mig spelt tortillu með kjúklingi, rosa gott! Ótrúlega auðvelt að fylgja mataræðinu mínu núna, því það er svo margt til og margt hægt að kaupa. Ég er alveg að missa mig yfir ástralska biggest loser, ótrúlega skemmtilegt! Horfi á marga þætti á dag, svolítið biluð!! Jæja, nú er ég hætt í bili! :)
Laugardagur75kg
Góðan dag, það er víst komin helgi, ekki það að ég finni mikið fyrir því, þar sem ég er í vaktavinnu og á víst ansi sjaldan helgarfrí, það fylgir þessu. Ég steig á vigtina í gær, sem ég vissi að ég var búin að þyngjast, var 93.4, 500 gr upp frá því á þriðjudaginn. Ég er bara svona jójó og virðist ekki vera að jójóast mikið niður, ég neita að gefast upp. Ætla að tækla þetta fram að jólum og sjá hvað gerist þá.
Ég er búin að vera rosalega dugleg í ræktinni, tók 2 tíma intense æfingu í gær og er á leiðinni út að hlaupa, ætla að taka 6 km í dag, það verður fínt þegar það er búið. Annars ætla ég að hafa smá svona nammidag í dag, það mun samt ekki innihalda hveiti eða sykur! Góða helgi öll! :)
.....................75kg
Ég veit einhvern veginn aldrei hvað ég á að hafa í fyrirsögninni hérna, voða erfitt að velja eitthvað. Ég er búin að vera taka svaka æfingarviku núna. Hleyp 6 km þá daga sem ég lyfti ekki og þá daga sem ég lyfti, tek ég brennslulyftingar. Til dæmis tek 2 lyftingaræfingar, hleyp og geri maga á milli og geri þetta 4 sinnum, svo tek ég líka róður á milli. Svaka svitaæfingar sko.SVo er ég að gera svo margt margt annað, eins og í gær, hljóp ég 6 km og tók svo 2 tíma kayakróður eftir það. Var svolítið svona búin a því í gær en það var nú allt í lagi.
Svo í dag tók ég svona brennslulyftingar og reyndar líka brennslu á stiga eftir það, samtals var ég á nokkuð erfiðri æfingu í 2 tíma. Já ég er bara nokkuð sátt við þetta. Þetta kemur hægt og rólega.
Svo er þessi blessaða vigt ekki alveg að gera sig þessa dagana, á föstudaginn eða fimmtudaginn síðasta var ég búin að þyngjast um 2 kg. Svo fór ég á vigtina í gær og púff, þessi blessuðu 2kg horfin. Þetta er ótrúlegt, ég er búin að vera jójóast svona í margar vikur og mánuði, skil þetta ekki. Ég skal lofa ykkur því að þegar ég vigta mig á föstudaginn verður þetta allt komið aftur, svona er þetta bara! :)
æfingar.is75kg
Ég fór út að hlaupa í gær og skokkaði einhverja 6 km. Svo fór ég í ræktina í dag og tók alls kyns brennslu og lyftingar, tók sko aldeilis vel á. Einhverjar klikkaðar magaæfingar, er meira að segja hálfdofin í maganum eftir þetta, hehe! En svo fór ég í bónus og keypti mér alls kyns hollustu, ávexti, grænmet, skyr og svo framvegis. Gengur bara vel að vera í hveiti og sykurleysi og líður bara ágætlega.Ætla samt ekkert á vigtina fyrr en á föstudagin, var hvorki meira né minna en 94.8 á síðasta, blahh búin að þyngjast um 2 kg bara einn tveir og tuttugu án þess að gera nokkuð af mér! whaaaaaaaa, svona er þetta bara! :)
Markmið75kg
Vuhú, hvað ég er gjöl að einhver er að skoða síðuna mína, bara gaman! :) Það er svo hvetjandi nefnilega. En ég er mikið búin að vera pæla í þessu og nú búin að ákveða að setja mér nokkur markmið. Nenni eiginlega ekki að vera með einhver langtímamarkið og finnast það alltaf vera svo langt langt í burtu, þannig að ég ætla að setja mér nokkur svona skammtímamarkmið og sjá hvað gerist.1. 0któber 2008, ætla ég að vera 91.8.
1. Nóvember 2008, ætla ég að vera 88.8
1. desember 2008, ætla ég að vera 85.8.
1. janúar 2009, ætla ég að vera 83 kg.
1. Febrúar 2009, ætla ég að vera 80.5.
1. Mars 2009, ætla ég að vera 78 kg.
1. Apríl 2009, ætla ég að vera 75.5.
Þannig að eins og þið sjáið, þá ætla ég mér nú ekki stóra hluti í hverjum mánuði, en ég ætla mér að ná öllum þessum markmiðum, þannig er það nú bara. Núna er loksins komið að þessu og hana nú.
Annars er ég búin að vera dugleg að æfa alla vikuna. Búin að fara út að hlaupa á hverjum morgni kl. 5:30. Reyndar ekki í dag, en í gær á laugardegi, það finnst mér ótrúlega magnað.
Svo er ég alveg hooked á biggest loser. Er búin að vera horfa á ástralska þáttinn, maður getur séð hann á youtube.com, bara setur the biggest loser aus, þá koma endalausir möguleikar. Ástralska serían er miklu lengri, þeir voru með þessa þætti á hverjum degi, þannig að maður sér miklu meira. Og svo eru meira að segja bob og jillian í þessum seríum líka, bara gaman, mæli með þessu. Jæja ætla að fara undirbúa mig undir æfingu í dag! Eigiði góðan dag! :)
Palli var einn í heiminum75kg
Ég er með smá svoleiðis tilfinningu, mér finnst enginn vera að skoða bloggið mitt, en ég læt það ekki á mig fá og held áfram ótrauð! :) Ég fór út að hlaupa í þessu viðbjóðs veðri í morgun og var bara nokkuð ánægð með mig. Svo fór ég á vigtina og var aðeins minna ánægð með mig. Búin að bæta við mig 2 kg síðan í síðustu viku. Garg hvað þetta er pirrandi, jæja svona er lífið, ég fann þetta svosem á mér. Þó ég borði ekki hveiti eða sykur getur maður borðað alls kyns öðruvísi rusl. Eins og til dæmis flögurnar sem ég borðaði í gær, hahah, geðveikt dugleg eða þannig.Það er ekki mjög sniðugt að hakka í sig saltflögur daginn fyrir vigtun, þetta gengur bara betur næst, næsta vigtun á að vera á næsta föstudag. Fyrir utan þetta gengur mér bara ágætlega.
And on I go......75kg
Jájá ég er hérna ennþá, er alveg á fullu í þessu öllu saman. Er ennþá í hveiti og sykurbanni og það er bara að ganga nokkuð vel, allavega er ég bara ánægð með þetta allt saman! Fór á vigtina í byrjun siðustu viku og hún sýndi 92.9, var bara alveg sátt við það, er samt farin að hlakka verulega til að komast niður í 80 og eitthvað og svo 70 og eitthvað, þetta kemur, tekur bara tíma, maður þarf bara að átta sig á því.Annars er ég búin að fara á fætur kl. 05:00 síðustu daga og fara út að hlaupa, hleyp nú ekkert langt, en svona 3 til 4 km. Hef ekki meiri orku svona á morgnana, en þetta er alveg ágætt.
Ætla að reyna að vigta mig vikulega, reyni jafnvel að fara á morgun, en ég á nú frekar von á því að hafa þyngst en hitt, en þetta er allt saman á réttri leið. Mér finnst vera orðin svo mikil lægð í öllum átaksbloggunum, ég get nú ekki sagt mikið algjörlega ekki að standa mig, en nú ætla ég að reyna!!! Gangi ykkur öllum vel. VIÐ GETUM ÞETTA! :)
Hmmmmmm75kg
Þetta náttúrulega gengur bara alls ekki hjá mér. Nú þýðir ekkert annað en að byrja blogga. Ég byrjaði á gamla mataræðinu mínu aftur í gær, semsagt ætla að halda mig frá hveiti, sykri og geri í einhvern x langan tíma. Allavega fram að jólum og svo kemur í ljós hvað verður. En dagur 2 er að kveldi kominn og þetta er allt í lagi ennþá. Í raun og veru ekki búin að vera í neinu hollustufæði samt, en h, s og g laust svo það er í lagi. Er nú aðallega í þessu vegna magavesens en kosturinn við þetta er að maður ætti nú að grennast, hehe! ;)En ræktin er ekki búin að vera góð síðasta mánuðinn, sem er mjög ólíkt mér, en það stendur allt til bóta, svona er þetta þegar maður er í sumarfríi. Þannig að nú byrja ég í smá átaki aftur og ætla að vera dugleg að blogga!!! Jei gaman!! Dagur 2...........
Blog blog blog75kg
Já ég steig á vigt í gær og hún sýndi hvorki meira né minna en 92.3, sem er í sjálfu sér ágætt, þar sem að ég var 93.7 á mánudaginn eftir sukkdagana, þannig að þetta smá lekur af aftur. Annars gengur allt bara ágætlega. Hef ekki drukkið gos, ekki borðað nammi, kökur eða snakk og svo framvegis. Finnst þetta ganga samt furðulega hægt, verð að segja það! Ég man þegar ég fór í aðhald fyrir 10 árum síðan, þá rokgekk þetta 1 2 og 20 og allt farið. Hmmm aldurinn eitthvað farinn að segja til sín.En já, hreyfingin er alltaf bara ágæt. Hef reyndar verið alveg afskaplega þreytt síðustu daga og furðuleg eitthvað og alveg ofsalega orkulaus og því verið mikið að berjast við að klára mitt í því. En það hefur einhvern veginn tekist og svo hjóla ég alltaf í vinnuna, þannig að þetta smá mjakast! Langar bara svo að komast niður úr þessu 90 og eitthvað, farið að pirra mig svoldið mikið, búin að vera föst þarna í heilt ár, ofsalega pirrandi. En já ég held áfram, gangi ykkur hinum líka vel. Já ég gleymdi því, ég mældi cm í dag og var búin að missa alveg heila 7.5 cm á mánuði, það er allavega eitthvað! :)
Hehe, þýðir ekkert að hætta að blogga75kg
Hæ hó, já ég hef ekkert bloggað í langan tíma núna, því að ég fór í sumarfrí og var ekki alveg við tölvu! Ég gerði svosem ekki mikið í fríinu hvorki ræktarlega eða matarlega séð, en vitiði hvað, það var svo notó!!! Ég var samt sem áður mjög meðvituð um að ég væri í einhverju aðhaldi að bitarnir sem læddust upp í mig, voru töluvert færri en þeir hefðu getað orðið, sem er mjög gott!En þar með vigtaði ég mig ekkert á síðasta vigtunardegi, því ég var ekki í bænum, en allavega, ég vigta mig á næsta vigtunardegi, eða næsta fimmtudegi. Og ég hef ekki mjög góða tilfinningu fyrir því, en það verður bara að koma í ljós og hana nú! :)
Ég held áfram, er ekkert að gefast upp. Ég reyni að hugsa á hverjum degi, þegar ég finn að ég er að bugast að ég ætli mér að klára dæmið núna, ég ætla að verða ótrúlega fit. Og þar með reyni ég líka að hugsa þegar ég er að deyja úr löngun í eitthvað gott, hvort að mig langi meira í það eða hvort að mig langi meira að vera í flottu formi, sem er nokkuð auðveld spurning!!!! ;)